





Dyngja
Dyngju dúnúlpan í stuttu sniði er einstaklega hlý og þægileg, fyllt með hágæða endurunnum dún, en dúnninn er með 700 fill-power og veitir því einstaka einangrun miðað við þyngd.
Á úlpunni er hár kragi fylltur með dún sem veitir auka skjól og hetta með snúrugöngum. Hægt er að taka hettuna af. Stormlisti yfir rennilás sem kemur í veg fyrir að vindur blási í gegn. Tveir renndir vasar að framan, einn innri vasi og snúrúgöng með teygju í mitti svo hægt er að þrengja og aðlaga snið.
Til þess að festa hettuna á úlpunni svo rennilásinn opnist ekki þarf að leggja hausinn á rennilásnum niður meðfram rennilásnum, þannig að hausinn standi ekki út fyrir hettuna.
Mynstrið sækir innblástur í fyrstu flíkina okkar, sjóstakkinn, frá árinu 1926. Enn þann dag í dag er sjóstakkurinn ómissandi hluti íslensks sjávarútvegs, þar sem ótal sjómenn treysta á 66°Norður flíkur úti á sjó.
- Framleiðsluábyrgð Lestu ábyrgðarskilmálana okkar
- Stíll
Dúnúlpa
Frí heimsending á öllum pöntunum yfir 20.000 ISK
Samkvæmt reglum um rafræn kaup má falla frá kaupum án þess að tilgreina nokkra ástæðu innan 14 daga frá afhendingu vörunnar fyrir fulla endurgreiðslu.
Upplýsingar um skilareglur hér.