1/6

Dyngja

Product code: W41235-P214-S
Skelbuxur úr endingargóðu þriggja laga efni með 10.000 mm vatnsheldni með mynstri sem sækir innblástur í fyrstu flíkina okkar, sjóstakkinn, frá árinu 1926.
29.000 ISK
Litur
Fisherman Print
Stærð S

Dyngja skelbuxurnar eru gerðar úr endingargóðu þriggja laga efni með 10.000 mm vatnsheldni. Efnið hefur ákveðinn stífleika sem gefur buxunum formfast yfirbragð og tryggir áreiðanlega virkni við krefjandi aðstæður. Buxurnar henta vel í ýmisskonar útivist eða hreyfingu eins og í fjallgöngu eða á skíðum.

Buxurnar eru með tvöföldum snúrugöngum með teygju í mitti sem gera manni kleift að aðlaga sniðið. Neðst á skálmunum eru smellur sem auðvelda notkun buxnanna yfir kulda- eða skíðaskó. Á hliðunum eru AquaGuard® vatnsheldir rennilásar.

Mynstrið sækir innblástur í fyrstu flíkina okkar, sjóstakkinn, frá árinu 1926. Enn þann dag í dag er sjóstakkurinn ómissandi hluti íslensks sjávarútvegs, þar sem ótal sjómenn treysta á 66°Norður flíkur úti á sjó.