


Dyngja
Dyngju vestið er einstaklega hlýtt og létt, fyllt með hágæða endurunnum dún, en dúnninn er með 700 fill-power og veitir því einstaka einangrun miðað við þyngd. Vestið er frábært ytra lag yfir léttar peysur eða boli á mildari dögum.
Á vestinu er hár kragi fylltur með dún sem veitir auka skjól ásamt stormlista yfir rennilás sem kemur í veg fyrir að vindurinn blási í gegn. Tveir renndir vasar að framan, einn innri vasi og snúrúgöng með teygju í mitti svo hægt er að þrengja og aðlaga snið.
Dyngju vestið hentar einstaklega vel fyrir daglegt íslenskt líf og hvers konar útivist.
Mynstrið sækir innblástur í fyrstu flíkina okkar, sjóstakkinn, frá árinu 1926. Enn þann dag í dag er sjóstakkurinn ómissandi hluti íslensks sjávarútvegs, þar sem ótal sjómenn treysta á 66°Norður flíkur úti á sjó.
Vestið er stórt í sniði og hentar öllum. Við mælum með að taka einni stærð minna en venjulega fyrir karla. Fyrir konur mælum við með að taka tveimur stærðum minna en venjulega.
- Framleiðsluábyrgð Lestu ábyrgðarskilmálana okkar
- Stíll
Vesti
Frí heimsending á öllum pöntunum yfir 20.000 ISK
Samkvæmt reglum um rafræn kaup má falla frá kaupum án þess að tilgreina nokkra ástæðu innan 14 daga frá afhendingu vörunnar fyrir fulla endurgreiðslu.
Upplýsingar um skilareglur hér.