1/6

Dyngja

Product code: W11465-P214-2XS
Einstaklega hlý og þægileg dúnúlpa fyllt með hágæða endurunnum dún. Mynstrið á úlpunni sækir innblástur í fyrstu flíkina okkar, sjóstakkinn, frá árinu 1926.
75.000 ISK
Litur
Fisherman Print
Stærð XXS

Dyngju dúnúlpan er einstaklega hlý og þægileg, fyllt með hágæða endurunnum dún, en dúnninn er með 700 fill-power og veitir því einstaka einangrun miðað við þyngd.

Á úlpunni er hár kragi fylltur með dún sem veitir auka skjól og hetta með snúrugöngum. Hægt er að taka hettuna af. Stormlisti yfir rennilás sem kemur í veg fyrir að vindur blási í gegn. Tveir renndir vasar að framan, einn innri vasi og snúrúgöng með teygju í mitti svo hægt er að þrengja og aðlaga snið.

Til þess að festa hettuna á úlpunni svo rennilásinn opnist ekki þarf að leggja hausinn á rennilásnum niður meðfram rennilásnum, þannig að hausinn standi ekki út fyrir hettuna.

Mynstrið sækir innblástur í fyrstu flíkina okkar, sjóstakkinn, frá árinu 1926. Enn þann dag í dag er sjóstakkurinn ómissandi hluti íslensks sjávarútvegs, þar sem ótal sjómenn treysta á 66°Norður flíkur úti á sjó.

Úlpan er stór í sniði. Við mælum með að taka einni stærð minna en venjulega fyrir karla. Fyrir konur mælum við með að taka tveimur stærðum minna en venjulega.